
Þá er ÞJÓÐHÁTÍÐIN 2006 afstaðin... og var hún
algjör SNILLD í alla staði eins og vanalega!
og byrjaði hún
svona óformlega á miðvikudaginn 
Miðvikudagur
Fyrstu gestirnir komu með fyrri ferð Herjólfs og
það voru Stebbi og Einar Ágúst
Það var auðvitað bara byrjað á
því að fara í ríkið og versla fyrir herlegheitin sem framundan voru
og svo bara gert sig reddí fyrir kvöldið... Stelpurnar og
krakkarnir úr Reykjavík mættu hingað og sátum við útá palli að
sötra fram eftir kvöldi... við ákváðum svo um 2 leytið að rölta
aðeins niðrí bæ og vorum við komum heim um 4 leytið... bara mjög
fín upphitun fyrir helgina 

Fimmtudagur
Mætti í vinnuna til 12 og þá var farið beint heim
þar sem tjöldunin inní Dal sem
átti að vera klukkan 6 hafði auðvitað sprungið fyrr eins og
alltaf... strákarnir fóru af stað og náðu góðu stæði á
Týsgötunni... þar sem við viljum alltaf vera
og
þá var bara náð í súlurnar og verkfæri til að koma öllu heim og
saman
og gekk það allt bara vel
Þá var farið heim og gert sig
reddí fyrir kvöldið... enda Húkkaraball í vændum
Við hittumst öll hérna heima í bílskúrnum eins og í fyrra og
hituðum upp áður en við fórum á ballið
Um 1 leytið héldum við
niðrí Týsheimili og var algjört slagveður úti þannig að við fórum
bara beint inná ballið og voru Stuðmenn að spila!
og voru þeir
bara helvíti góðir og skemmti ég mér konunlega þrátt fyrir
annarlegt ástand... hehehe 

Föstudagur
Vorum öll vakin upp kl 11 til að fara
tjalda og var heilsan bara nokkuð góð miðað við
drykkju kvöldið áður
Við fórum niðrí Dal og
hentu öllu upp á 3 tímum
Þá var farið heim og skipt um föt og
fórum ég, Guðrún og pabbi inní Dal á setninguna
eftir setninguna var farið heim að smyrja og gera allan mat kláran
til að fara með í tjaldið
Við
AFRÓDÍTURNAR hittumst hérna og löbbuðum saman
niðrí Týsheimili þar sem við tókum þátt í
búningakeppninni... þaðan löbbuðum við allar saman
inní Dal og gerðum okkur lítið fyrir og
UNNUM BÚNINGAKEPPNINA
og djöfull var það
gaman!!!
svo var auðvitað farið niðrá tjörn til
að horfá Brennuna og var hún stórglæsileg að
vanda!
eftir brennu var farið uppí
tjald og fengið sér að borða og svo var auðvitað
drifið sig á stóra pallinn og
dansað og dansað til að verða 6!


------

Laugardagur
Var að vinna 12-17 ! og þá bara heim í sturtu og
gert sig tilbúna fyrir dalinn og mætt niðreftir um
9 leytið enda byrjar kvöldvakan þá!
og farið
beint í brekkuna og fylgst með
kvöldvökunni til 12 og þá var farið og fundið sér
stæði til að horfá flugeldasýninguna sem var
Truflað Flott!!!
og svo var farið á pallana og
dansað til að verða 7 

------

Sunnudagur
Hélt ég myndi mygla úr þynnku! Enda tók það mig
klukkutíma og koma niður einum bjór og ég fór beint og ældi honum!
En mar er alltaf með aukaorku á Þjóðhátíð og þá
var bara skellt í sig 4-5 í viðbót og þá var ég orðin góð!
Kristjana og Guðrún komu til mín og fórum við samferða inní
Dal
Loksins gat mar djammað
með Kristjönu... komið ár síðan!
Enda fórum á kostum held ég!
við settumst allar saman Afródíturnar í
brekkuna... fylgdumst með
kvöldvökunni og svo sungum við allar saman
hástöfum í brekkusöngnum þegar
Árni Johnsen mætti með gítarinn!
og djöfull var hann góður í ár!
svo voru það blysin
, flugeldasýningin og auðvitað var
spilað undir Lífið Er Yndislegt og sungu 10.000
manns með
Mar fær alltaf jafn mikla gæsahúð við tilhugsunina!
og þá var auðvitað bara beint skellt sér á
pallana!
ég og Kristjana ákváðum að koma við í
skran búðina og eyddum nokkrum þúsund köllum þar
enda vorum við
vel skreyttar og keyptum okkur báðar gítar og fórum hamförum!!!
og svo var dansað til að verða 10 um morguninn!
Ekki slæmt það!
Og fór ég heim heldur betur sátt við SNILLDAR
ÞJÓÐHÁTÍÐ! 
Hérna eru svo myndir frá Þjóðhátíðinni:
http://berglind.birta.net/39
------


------
TAKK FYRIR FRÁBÆRA HELGI
ALLIR!!! 
LOVE
YOU!
------

Ykkar
Berglind